Ný hýsing á öðrum stað

Spekingar Spjalla standa í stórræðum og hafa flutt sig um set og komnir með nýja hýsingu. Við biðjum ykkur hlustendur góðir um að smella á leitargluggann í hlaðvarpsforritinu og finna Spekinga Spjalla aftur. Þá kemur þátturinn reyndar upp tvisvar sinnum en látið ekki fögur andlitin á myndunum blekkja ykkur – þátturinn sem þið viljið subscribe-a er þátturinn sem hefur ekki að geyma þessa góðu klippu.

Við biðjumst velvirðingar á öllum óþægindum sem flutningarnir kunna að valda þér og þínum nánustu.